blettur til framfara fyrir gomlu og dýrið

7.21.2004

Pottaparty og Margarítur

nú styttist óðum í hið árlega pottaparty! umræðan síðustu viku hefur snúist um hvaða matarþema við ættum að hafa og hvort það sé ekki "skynsamlegt" að hafa bara 3 kokteila í þetta skipið!! ekkert skynsamlegt við það .. bara skemmtilegt! Niðurstaðan er fisk fiesta með tilheyrandi látum og kokkakúnstum :) mamma fjölskyldunnar verður fjarri við eldamenskunna, hann þarf að hafa ofanaf fyrir tékkum til kl 11 þannig við ´verðum að stóla á okkur að maturinn verði súper. Það er nú búið að rasskella mig svo oft fyrir frægu sósunna mína í fyrra... veit að ég fæ sennilega bara að horfa á í þetta skiptið!!! Eg hlakka sem sagt voða mikið til.. og veit að ég á eftir að vera rosa sæt og fín á flugvellinum daginn eftir. dam.. það er svo rosalega vont að vera þunnur í flugvél.. en ég ætla að láta mig hafa það!!!
Loksins er eg byrjuð á ritgerðinni !!! mjög erfið fæðing en er komin á skrið og þokan yfir þessu er að leysast upp... er að leggja loka hond á ritgerð um ritgerðinna sem ég ætla að láta kennarann fá, þannig þa er þetta officially komið af stað.  Eins og sést þá hef ég ekki gert margt síðustu daga en að hamast í þessu. Gefið mér smá tíma í að hreyfa mig aðeins, liggja í pottunum í laugunum og hamaðist í allt gærkvöld við að hitta gólfkúlur :) gekk misjafnlega vel en fjandi gaman. Skrapp aðeins á síðustu helgi uppí bústað að ná í dýrið og sóla mig aðeins.. og já ekki má gleyma.. fá mat!!! djöfull er maður latur við að elda þegar maður er svona einn!! það er bara ekki séns að maður hafi sig í þetta.. þanni  þetta var unaður.  Svo er það bara útlönd beibí!!! damn hvað eg hlakka til.. bara mango, strendur, sætir strákar og kalt hvítvin :) ég þarf ekki annað í þessu lífi eins og er :) 

7.16.2004

Opinberun

Þetta er orðið opinbert! ég er háð, get ekki fúnkerað án, er s.s algerlega vonlaus án þin!!!! get ekki lýst þeirri ánægju að fá tölvunna mína aftur úr viðgerð!

7.13.2004

Vestfirðir beibí!

Landslagsbreytingin sem á sér stað er svo stórkostleg að maður upplifir hana sem heillun. Upplifunin er svo margþætt, hún er falleg, drúngaleg, leyndardómsfull og fær hjartað til að tikka hraðar. Ferðin hófst í raun ekki fyrr en farið var framhjá Bjarkarlundi þá var ég að sjá allt í fyrsta skipti. Vatnsfjörður er nátturuundur, þangað verð ég að fara aftur og hæka hvern hól auk þess að fara á kayak út á fjörðin! ég get rétt imyndað mér hvað það er töff. Svo eru það heiðarnar sem maður fer yfir, maður fer svo hátt að maður fær hellur og þakkar fyrir í hvert skipti að það er sumar en ekki vetur með tilheyrandi svelli! Nýttum okkur merkta útsynisstaði, sem er fullt af, til að fá okkur að borða og teygja úr okkur. Dýrið var ekkert ánægð með að vera með nesti og kvartaði stöðugt yfir að fá ekki sjoppufæði :) Stefnan var tekin á bændagistinguna í Breiðuvík sem er rétt hjá Bjargtöngum. Þetta er gamall heimavistarskóli fyrir vandræða börn og unglinga að sunnan. Vegurinn liggur meðfram hvítum ströndum og þverhníftum töngunum og ég verð að viðurkenna að keyra þessa leið í svartri þoku fékk hjartað mitt til að slá hratt. Það er skemmtileg tilfining að finna að maður er á hjara veraldar og er eitt spurningarmerki þegar maður keyrir fram hjá þessum býlum sem eru þarna, óneytanlega ber maður virðingu fyrir því fólki sem þarna býr!. Merkilegt nokk er safn sem er þarna. Safn Egills Ólafssonar. Þar er að sjá hvernig menn lifðu af á þessu svæði fyrr á tímum, saga sem er stórmerkileg og og skemmtilegt að segja frá því þá er líka flugvéla safn þarna!! Þetta er rosaleg flott safn, flott uppsett og margt merkilegt að sjá.
Það hefur orðið mikil fólksfækkun í litlu þorpunum og það er vel merkjanlegt. Það eru rosalega mörg hús sem standa auð og yfirgefin, sérstaklega var þetta áberandi á Patreksfirði og Bíldudal! En önnur þorp virðast blómstra þrátt fyrir allt. Það er satt hjá lilla að það er búið að loka okkar pöbb á Ísafirði en það stoppaði mig nu ekki í að drekka einn bjór eða tvo svona sem reunion þegar komið var á Ísafjörð. Bærinn hefur stækkað helling frá því við vorum þarna og er bara meira sjarmerandi nú en þá! Sem sagt ljómandi ferð í alla staði sem stækkaði sjóndeildarhring minn, þroskaði þolimæði mína til muna sé hugsað til ferðafélaga og plássleysis og vakti óendalega ánægju!

7.05.2004

Geisp!

Dísús hvað gamla er þreytt í dag! Tók uppá því að fara að lesa Kúgun kvenna eftir John Stuart Mill uppúr miðnætti í gær! Lestrinum lauk ekki fyrr en klukkan var að ganga 4!!! tilgangurinn???? ætli það sé ekki áhugi og að ég geti rifið mig svolítið!
Kollvarpaði svo öllum hugmyndum um leið og ég vaknaði og fór í Beckham bolin minn! dam hvað maður er splitt!

7.04.2004

Útilega og perraskapur

Stefnan var tekin á Álfaskeið með dundur flottann tjaldvagn. Það fylgdi meira að segja tjöldunar-hanskar græunum. Bílstjórinn var sérstaklega stoltur af vagninum og ekki síst fylgigræum! Þetta er ofsalega finn staður og mæli eindreigið með útilegum þangað. Okkar útilega varð kanski ekki eins og við höfðum gert okkur væntingar til en hún var samt sem áður skemmtileg en kanski heldur of lítið um læti. Veltum þvi fyrir okkur þegar við vöknuðum morguninn eftir hvort það væri aldurinn sem væri að færast yfir okkur eða hvort dynurnar í glæsikerrunni væri kanski ekkert voðalega þykkar. Við vorum sem sagt öll 3 gjörsamlega að drepast í bakinu! gamla er enn að drepast.. getur varla hreift sig.. það er enn pína að setja á sig bílbelti, sitja, liggja. .. eða bara hreyfa sig bara almennt! þarf að leigja mér gimp til að laga mig! Þar sem það tókst ekki að vera með læti þarna um kveldið var ákveðið á leiðinni heim að þetta yrði bara tekið út á höfuðborgarsvæðinnu. Uppúr miðnætti hittumst við sem sagt aftur ásamt félögum á nýjum skemmtistað hér í boginni og vorum bara með læti fram eftir morgni 8=) Við mæja vorum sérstaklega töff, sérstaklega þegar við vorum að perrast fyrir myndavélinna. Bið eiganda hennar hér með afsökunnar, þú varst bara á vitlausum stað á vitlausum tima!!! Veit ekki alveg hvað það er með okkur og myndavélagræjur. Við náum alltaf að láta documentera vitleysunna okkar... dísús! En þetta var rosalega gaman að hitta ykkur og eyða tima með ykkur hjónakornin mín, áður en þið farið aftur vestur um haf! bara takk fyrir helginna :-)